Íþróttahátíð Akureyrar í Hofi á fimmtudaginn – Tilnefningar til íþróttafólks Akureyrar 2025

Íþróttahátíð Akureyrar í Hofi á fimmtudaginn – Tilnefningar til íþróttafólks Akureyrar 2025

Íþróttahátíð Akureyrar

Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær bjóða bæjarbúum til athafnar í Hofi fimmtudaginn 29. janúar kl. 17.30 þar sem kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Akureyrar fyrir árið 2025 verður meðal annars lýst. Frá þessu er greint á heimasíðu ÍBA.

Verður þetta í 47. sinn sem Íþróttamaður Akureyrar er heiðraður og í tíunda sinn þar sem bæði íþróttakona- og íþróttakarl Akureyrar eru valin og heiðruð.

Dagskrá hátíðar

  • Hátíðin sett af formanni ÍBA
  • Ávarp formanns Fræðslu- og lýðheilsuráðs
  • Kynning á Íslandsmeisturum 2025
  • Kynning á heiðursviðurkenningum Fræðslu- og lýðheilsuráðs
  • Styrkveiting úr Afrekssjóði Akureyrar
  • Kynning á tilnefningum tíu efstu til Íþróttafólks Akureyrar 2025
  • Kjöri íþróttkarls- og íþróttakonu Akureyrar 2025 lýst

Athöfnin er opin öllum. Húsið opnar klukkan 17 en athöfnin sjálf hefst kl. 17:30.

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakonu Akureyrar 2025 (Í stafrófsröð)

  • Andrea Ýr Ásmundsdóttir – GA – golf
  • Bergrós Ásta Guðmundsdóttir – KA/Þór – handbolti
  • Drífa Hrund Ríkharðsdóttir – KA – lyftingar
  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir – Þór – körfubolti
  • Hafdís Sigurðardóttir – HFA – hjólreiðar
  • Hulda Björg Hannesdóttir Þór/KA – knattspyrna
  • Julia Bonet Careras – KA – blak
  • Sandra María Jessen – Þór /KA – knattspyrna
  • Stefanía Daney Guðmundsdóttir – UFA – frjálsar íþróttir
  • Sædís Heba Guðmundsdóttir – SA – listhlaup á skautum

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakarls Akureyrar 2025 (Í stafrófsröð)

  • Alex Cambray Orrason – KA – kraftlyftingar
  • Baldvin Þór Magnússon – UFA – hlaup
  • Bjarni Ófeigur Valdimarsson – KA – handbolti
  • Einar Árni Gíslason – SKA – gönguskíði
  • Hallgrímur Mar Steingrímsson – KA – knattspyrna
  • Sigfús Fannar Gunnarsson – Þór – knattspyrna
  • Sólon Sverrisson – KA – fimleikar
  • Unnar Hafberg Rúnarsson – SA – íshokkí
  • Veigar Heiðarsson – GA – golf
  • Þorbergur Ingi Jónsson – UFA – hlaup

Hátíðin er opin öllum en verður einnig streymt. Hlekkur á streymið kemur inn á heimasíðu ÍBA á næstu dögum.

COMMENTS