Þór og KA mættust í Akureyrarslag í lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta í gærkvöldi. Leikurinn varð æsispennandi og áhorfendur í Íþróttahöllinni fengu alvöru dramatík. Liðin skildu jöfn 31-31-
Bæði lið hefðu þurft sigur í leiknum, Þórsarar til að halda í vonina um sæti í úrslitakeppninni og KA menn til þess að fá heimavallarétt í sínu einvígi í úrslitakeppninni. KA leiddu 17-15 í hálfleik.
Lokamínútur leiksins voru æsispennandi. KA menn komust í 30-29 og svo 31-30 áður en Brynjar Hólm Grétarsson jafnaði metinn í 31-31 örfáum sekúndum áður en leiknum lauk.
KA menn enda deildarkeppnina því í fimmta sæti. Þórsarar enda í því níunda og missa af úrslitakeppninni.
Ítarlega umfjöllun um leikinn má finna á Vísi.is með því að smella hér.


COMMENTS