Sænski knattspyrnumaðurinn Samuel Kroon skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KA. Hann er annar leikmaðurinn sem knattspyrnudeild KA fær til liðs við sig í dag en í morgun skrifaði Danijel Dejan Djuric undir samning hjá félaginu.
Sjá einnig: Danijel Djuric til liðs við KA
Samuel er 29 ára gamall og getur leikið sem bæði kantmaður og bakvörður. Hann kemur frá sænska liðinu Örebrö en þar hafði hann leikið frá árinu 2023.
„Það verður virkilega gaman að sjá hvernig Samuel smellur inn í lið KA en Samuel er fjölhæfur leikmaður sem eins og áður segir getur bæði leikið sem kantmaður og bakvörður. Það er ljóst að koma hans mun styrkja hópinn fyrir komandi átök og ætlumst við til mikils af þessum öfluga kappa í gula og bláa búningnum en fyrsti leikur KA í Bestudeildinni í sumar er 12. apríl næstkomandi þegar strákarnir okkar taka á móti Stjörnunni á Greifavellinum,“ segir í tilkynningu á vef KA þar sem má lesa meira um Samuel.


COMMENTS