KA/Þór tryggðu sér sæti í bikarúrslitahelginni

KA/Þór tryggðu sér sæti í bikarúrslitahelginni

Handboltalið KA/Þór tryggði sér sæti í bikarúrslitahelgi Powerade-bikars kvenna í handbolta með góðum sigri á Gróttu í gærkvöldi. Þar með er ljóst að bæði karlalið KA og kvennalið KA/Þórs verða á stærstu helgi handboltans í ár.

Leikur KA/Þórs og Gróttu hófst ekki fyrr en klukkan 20:45, eftir að hafa verið frestað vegna bilunar í flugvél, samkvæmt tilkynningu HSÍ. KA/Þór létu það ekki á sig fá og unnu 21-24 útisigur að lokum.

Jónatan Magnússon, þjálfari liðsins, sagði í viðtali við Kaffið.is fyrr í vetur að liðið væri með skýr markmið um að komast í bikarúrslitahelgina á þessu tímabili og sagði það vera skemmtilegustu helgi ársins.

Sjá nánar: „Orkan sem myndast frá okkar frábæru stuðningsmönnum er engu lík og er í heimsklassa“

COMMENTS