Tónlistarhópurinn Norðangarri heldur þrenna tónleika á Norðausturlandi helgina 29.-31. ágúst: í Deiglunni á Akureyrarvöku, á Húsavík og í Reykjahlíð.
Á tónleikunum flytur Norðangarri sambland af þjóðlögum víða að úr heiminum, m.a. frá Hawaii, Finnlandi, Belgíu, Færeyjum og Tyrklandi, eða alls 13 löndum.
Nafn tónleikanna er aðeins tvírætt, en auk þess að fjalla stuttlega um hvert þjóðlag verður komið inn á heiti hvers lands „landa“ (heimabruggs), svona til gamans. Áheyrendur fá á tónleikunum áhugaverða mynd af tónlist sem vex úr jarðvegi ólíkra menningarheima og tungumála. Tónlistin endurspeglar fjölbreytileika mannkynsins – og þá dásamlegu fegurð sem fylgir fjölbreytileikanum.
Fram koma Þórður Sigurðarson, Jón Þorsteinn Reynisson og Erla Dóra Vogler sem öll eru þekkt fyrir faglegan tónlistarflutning og líflega framkomu.
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði SSNE, Þingeyjarsveit, Samfélagssjóði KEA, Menningarsjóði FÍH og Akureyrarvöku.


COMMENTS