MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Lára Brynhildur fagnaði 100 ára afmæli

Eftir Ingólfur Stefánsson·
lara-brynhildur-eiriksdottir-2000×1500-1
kaffid.is

Lára Brynhildur Eiríksdóttir fagnaði 100 ára afmæli sínu þann 21. október síðastliðinn. Af því tilefni heimsótti Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar hana og færði henni blómvönd.

Lára Brynhildur var valinn Akureyringur vikunnar á samfélagsmiðlum Akureyrarbæjar. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík en flutti til norður árið 2002 til að dvelja hjá dóttur sinni.

„Hér líður mér vel. Það er ekki aðeins norðlenska loftið heldur allt góða fólkið. Hér er gott að vera.“ Aðspurð segist hún ekki hafa nein ráð handa þeim sem vilja ná 100 ára aldri. „Ég hef alltaf verið kát og glöð og það hefur bjargað mér – að vera ánægð með mitt. Ég heyri oft gamalt fólk lýsa því yfir hvað það gerði til að verða svona gamalt en sjálf var ég aldrei í íþróttum og kann ekki einu sinni að synda, enda alltaf verið vatnshrædd. En ég hef líka aldrei drukkið og aldrei reykt. Ég er bara svo heppin að vera glaðlynd og finnst gaman að vera til.“

Hér er hægt að lesa viðtalið við Láru á samfélagsmiðum bæjarins.

Tengdar greinar

Uppfært: 29. október 2026