Láta af störfum eftir samanlagt um 100 ár í starfi

Tveir læknar Heilbrigðisstofnunnar Norðurlands í Norður Þingeyjarsýslu létu nýverið af störfum, þeir Sigurður Halldórsson og Atli Árnason, en samanlagt hafa þeir skilað um 100 árum í starfi. Þeir voru kvaddir með virktum á dögunum og leystir út með gjöfum. Greint er frá á vef HSN.
„Við færum þeim Sigurði og Atla okkar innilegustu þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins á Norðurþingi í öll þessi ár og óskum þeim velfarnaðar á þessum tímamótum,“ segir á vef HSN.
Gísli Ólafsson tekur í kjölfarið við sem yfirlæknir hjá HSN í Norður-Þingeyjarsýslu. Hann hefur starfað hjá HSN um nokkurt skeið og þekkir vel bæði starfsemina og samfélagið.
„Við óskum Gísla innilega til hamingju með nýja hlutverkið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ segir í tilkynningu HSN.

Gísli lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1991 og sérgreinanámi í Noregi árið 1998. Hann hefur starfað hjá HSN á þremur svæðum í gegnum tíðina: á Blönduósi á árunum 2001–2006, á Húsavík 2015–2021 og í Norðurþingi frá árinu 2023. Þá hefur hann einnig starfað sem læknir í Västra Götaland í Svíþjóð, í Búðardal, í Biskupstungum og á heilsugæslunni á Sólvangi í Hafnarfirði.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










