Leggja niður verslanir Kristjánsbakarís á Akureyri

Leggja niður verslanir Kristjánsbakarís á Akureyri

Stjórn Gæðabaksturs hefur ákveðið að hætta rekstri Kristjánsbakarís á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Gæðabaksturs. Í skoðun er að nýr rekstraraðili taki við versluninni í Hafnarstræti en verslunin við Hrísalund mun heyra sögunni til.

Í tilkynningunni segir að rekstur verslananna hafi verið þungur síðustu ár. Gæðabakstur mun einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni nyrðra en ekki er útilokað að frekari breytingar verði gerðar.

„Fjöldi stöðugilda hjá Gæðabakstri á Akureyri fækkar um 7 í verslunum og 3,5 í framleiðslu og pökkun. Stjórn Gæðabaksturs þakkar þeim starfsmönnum sem nú láta af störfum fyrir vel unnin störf og óskar þeim velfarnaðar í nýjum verkefnum,“ segir í tilkynningunni. 

„Nú er svo komið að stjórn fyrirtækisins taldi ekki lengur við óbreytt ástand unað og því var þessi ákvörðun tekin. Gæðabakstur mun nú einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni nyrðra en mun skoða alla möguleika með frekari breytingar í huga.“

COMMENTS