Leikfélag Húsavíkur er á lokasprettinum í æfingum fyrir söngleikinn Rocky Horror sem frumsýndur verður í Samkomuhúsinu á Húsavík þann 14. mars næstkomandi. Að sögn Karenar Erludóttur, sem situr í stjórn leikfélagsins og er aðstoðarleikstjóri sýningarinnar, hefur undirbúningur verið umfangsmikill og metnaður mikill.
„Við höfum vægast sagt sett mikið púður í þessa sýningu. Það má eiginlega segja að þetta sé ein stærsta uppsetning sem Leikfélag Húsavíkur hefur ráðist í undanfarin ár, bæði hvað varðar undirbúning, tæknibúnað, mannskap og allt umfangið í kring,“ segir Karen.
Djörf stefna og nýjar áherslur
Leikfélag Húsavíkur er eitt elsta leikfélag landsins. Það var stofnað árið 1900 og hefur verið hluti af menningarlífi bæjarins í meira en heila öld. Þá hét það Sjónleikfélag Húsavíkur sem var síðar breytt í Leikfélag Húsavíkur. Karen segir að margir í samfélaginu upplifi nú að nýr kraftur sé kominn í starfsemi félagsins.
„Við í stjórninni tókum þá ákvörðun í haust að breyta aðeins um stefnu, brjóta upp úr vananum og vera aðeins djörfari. Okkur langaði að prófa hluti sem hafa ekki verið gerðir áður hjá félaginu og leggja meiri áherslu á að ná til yngra fólks og nútímavæða starfið.“
Að hennar sögn hefur viðbragðið í samfélaginu verið mjög jákvætt. „Við erum stöðugt að heyra frá fólki að það sé eins og áður óséður kraftur virðist vera í félaginu. Það er auðvitað frábært að heyra og gefur okkur mikla hvatningu.“
Krefjandi en skemmtileg sýning
Rocky Horror er þekktur fyrir að vera bæði kraftmikill og krefjandi söngleikur og leikhópurinn hefur tekist á við verkefnið af miklum metnaði. Leikstjóri sýningarinnar er Eyvindur Karlsson og í sýningunni taka þátt 15 leikarar.
„Þau hafa staðið sig eins og hetjur á þessu æfingatímabili,“ segir Karen. „Rocky Horror er ekkert lamb að leika sér við og ég held að mér sé óhætt að segja að hver einasti leikari stígi vel út fyrir sinn þægindaramma á sviðinu. Þau gera það samt af miklum fagmennskuþrótti, þrátt fyrir að við séum ‘bara’ áhugaleikfélag.“
Tónlistin gegnir stórum hlut í sýningunni og því skiptir miklu máli að hafa sterka hljómsveit.
„Við erum mjög heppin með tónlistarfólkið okkar,“ segir Karen. „Brynjar Friðrik Pétursson er tónlistarstjóri og með honum í hljómsveitinni eru Axel Flóvent, Guðný Margrét Eyjólfs og Gunnar Illugi Sigurðsson. Þetta eru allt reynslumiklir tónlistarmenn og það er ómetanlegt í svona söngleik að hafa svona traustan hóp.“
Með aðalhlutverkið, Frank-N-Furter, fer Arnþór Þórsteinsson sem margir kannast við úr uppsetningum hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann hefur einnig komið að starfi Leikfélags Húsavíkur í gegnum tæknivinnu og lýsingu.

„Það er mikill fjársjóður fyrir lítið leikfélag eins og okkar að hafa svona hæfileikaríkan mann í okkar röðum,“ segir Karen.
Einar Óli Ólafsson fer með hlutverk Brads í sýningunni. Hann vakti athygli á sínum tíma í Idol og hefur síðan verið virkur í tónlistarlífinu.
Leikhústöfrar og fjör
Áhorfendur mega búast við líflegri sýningu þar sem ekkert er til sparað. „Við lofum hörku ljósashowi, reyk, tæknibrellum og alls konar leikhústöfrum. En síðast en ekki síst verður þetta bara rosalega skemmtilegt,“ segir Karen.
Frumsýning Rocky Horror hjá Leikfélagi Húsavíkur verður sem fyrr segir 14. mars, og ef marka má bjartsýnina í leikhópnum má búast við fjörugum leikhúskvöldum á Húsavík á næstu vikum.
„Við stefnum hátt og erum mjög bjartsýn á framhaldið,“ segir Karen. „Það er eitthvað sérstakt við að setja upp svona sýningu í litla samkomuhúsinu okkar og við vonum að sem flestir komi og upplifi það með okkur.“


COMMENTS