Leita að litlum vísindamönnum

Leita að litlum vísindamönnum

Rannsóknarstofan The CUTE lab við Sálfræðideild Háskólans á Akureyri rannsakar hvernig börn hugsa, hvernig þeim líður og hvernig þau læra á heiminn í kringum sig. Rannsóknir þeirra beinast að siðferðislegum skilningi barna og forvitni þeirra í daglegum aðstæðum.

Nú leitar rannsóknarhópurinn að þátttakendum sem eru börn á aldrinum fjögurra til átta ára. Hópurinn er að skoða hvernig börnin skilja sanngirni í úthlutun, það er að segja sanngjarna og réttláta dreifingu auðlinda og tækifæra á milli fólks.

Ef þú hefur áhuga á því að taka þátt í þessari vísindaferð með barninu þínu getur þú fyllt út meðfylgjandi eyðublað.

Þegar rannsóknarhópurinn er kominn með svör frá þér mun aðili úr teyminu hafa samband við þig í gegnum tölvupóst eða síma og finna tíma fyrir fyrsta spjall. Það getur bæði verið á virkum dögum og um helgar.

Þátttaka í þessari rannsókn fer fram á Zoom og tekur um 30-40 mínútur. Á meðan á rannsóknarlotunni stendur ert þú í sama rými og barnið þitt. Þú svarar könnuninni um þig, barnið þitt og bakgrunn fjölskyldu þinnar á meðan barnið sinnir sínum hluta rannsóknarinnar.

COMMENTS