Akureyrarbær hefur samþykkt að leita eftir kauptilboðum í byggingarrétt þriggja lóða fyrir íbúðarhús á svokölluðum Tjaldsvæðisreit. Ekki er hægt að bjóða eingöngu í eina lóð heldur eru þær boðnar út sem ein heild. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu bæjarins.
Lóðirnar sem um ræðir:
Byggðavegur 102-110: Lóð sem er 6.285 m² að stærð og gerir ráð fyrir fimm stakstæðum íbúðarhúsum á fjórum hæðum með sameiginlegum bílakjallara.
Hrafnagilsstræti 20/Þórunnarstræti 95-101: Lóð sem er 4.747 m² að stærð og gerir ráð fyrir fimm stakstæðum íbúðarhúsum á fjórum hæðum með sameiginlegum bílakjallara.
Þórunnarstræti 105: Lóð sem er 1.570 m² að stærð og gerir ráð fyrir einu stakstæðu íbúðarhúsi á þremur hæðum með 15-17 íbúðum. Miðað er við að í húsinu verði almennar íbúðir sem falla undir ákvæði um hlutdeildarlán eða að íbúðirnar verði seldar sem heild til óhagnaðardrifins félags.
Deiluskipulag enn í vinnslu
Enn er unnið að deiluskipulagi á svæðinu. Í frétt Akureyrarbæjar segir að miðað sé við að forsendur þess deiliskipulags sem hefur verið útfært frá því að ferlið hófst árið 2023 haldist í megindráttum, en gert er ráð fyrir að lokaferli deiliskipulags fyrir svæðið verði unnið í samvinnu við þann aðila sem fær lóðunum úthlutað. Deiliskipulagsvinnan verður áfram í höndum bæjarins en lóðarhafa gefst tækifæri til að hafa áhrif á útfærslu skipulagsins.
Lágmarksverð fyrir byggingarrétt lóðanna er samtals 295.117.910 krónur í janúar 2026 en byggingarréttargjald hækkar eða lækkar 1. hvers mánaðar samkvæmt byggingarvísitölu Hagstofu Íslands. Senda skal inn tilboð í lóðirnar með rafrænum hætti í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar innan auglýsts frests sem er til kl. 12:00 þann 12. febrúar 2026.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Akureyrarbæjar með því að smella hér.


COMMENTS