Líður að næstu samveru hjá stuðningshópi Píeta

Líður að næstu samveru hjá stuðningshópi Píeta

Nú líður að næstu samveru hjá stuðningshópi Píeta í kapellu Akureyrarkirkju, fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi. Við hvetjum ykkur til að skrá ykkur á viðburðinn og deila honum áfram:

https://fb.me/e/54E6exTAY

Jafningjastuðningur hefur margsannað sig þegar kemur að áföllum og sorgum lífsins. Það er eitthvað sérstakt sem gerist þegar fólk deilir reynslu og treystir hvert öðru fyrir eigin hugsunum og líðan þó ekki sé nema það að þoka einsemdarinnar hverfur. Það er svo merkilegt hvað traust og samlíðan gerir mikið fyrir okkar sárustu reynslu og tilfinningar. Í svona starfi eru gæðin fyrst og fremst fólgin í tjáningu og hlustun en þá er líka dýrmætt að hafa reyndan hópstjóra sem heldur utan um stundina.

Séra Hildur Eir Bolladóttir leiðir hópinn á Akureyri

Hópurinn mun hittast annan mánudag í mánuði í kapellu Akureyrarkirkju og hefst samveran klukkan 20:00. Næsta samvera er 13. október næskomandi.

Öll hjartanlega velkomin.

COMMENTS