Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom

Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur varað við fíkniefninu Kratom í tilkynningu. Í samvinnu við tollinn hefur lögreglan á Norðurlandi eystra nýlega lagt hald á tæp 60 kg af fíkniefninu Kratom í tveimur aðskildum málum. Kratom er lítt þekkt á Íslandi samkvæmt tilknningu lögreglunnar.

Virka efnið í Kratom er mítragýnin. Efnið hefur bæði örvandi áhrif en jafnframt deyfandi í stærri skömmtum. Kratom duft er grænt að lit og líkist grænu te og fæðubótarefni. Kratom kemur frá plöntunni Mitragyna speciosa sem á uppruna sinn í suðaustur Asíu.

Kratom er fíkniefni og er ólöglegt á íslensku forráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni. Lögreglan varar fólk við notkun efnisins en upplýsingar erlendis frá bera með sér að efnið sé þar jafnvel selt fólki ranglega sem fæðubótarefni eða náttúrulyf. Efnið getur verið enn skaðlegra sé það notað með öðrum vímugjöfum.

COMMENTS