Mæðgur brautskráðust saman úr Háskólanum á Akureyri

Mæðgur brautskráðust saman úr Háskólanum á Akureyri

Mæðgurnar Fríða Freydís og Ásta Birna brautskráðust saman úr stjórnun frá Háskólanum á Akureyri á Vetrarbrautskráningarhátíð háskólans sem var haldin í Hátíðarsal háskólans 14. febrúar. Þær eru báðar með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri en Fríða Freydís flutti til Akureyrar til þess að leggja stund á grunnnámið í staðnámi á meðan móðir hennar sinnti því í fjarnámi. Í samtali við vef HA segjast þær báðar hafa verið mjög ánægðar með námið þó að reynsla þeirra hafi verið ólík.

„Námskeiðin voru áhugaverð og okkur þótti báðum einnig mikill kostur að námið væri byggt upp sem fjarnám samhliða vinnu,“ segir Fríða Freydís í samtali við unak.is.

Hún segir að það hafi verið frábært að hafa mömmu sína með sér í náminu. „Hún hefur reynslu af stjórnun í starfi svo það var bæði gaman og gagnlegt að fá hennar sýn í verkefnin og ég lærði mikið af henni. Mamma er svo dugleg og drífandi og það var gott að hafa hana til að peppa mig áfram. Við eyddum miklum tíma saman að læra eða ræða skólann og ég er svo þakklát fyrir þennan tíma okkar saman.“

„Við peppuðum hvor aðra í að skrá okkur í námið. Við erum samrýmdar og vinnum vel saman og sáum því fyrir okkur að við gætum stutt hvor aðra í gegnum námið, sem var raunin,“ segir Fríða Freydís.

Ásta segir að það hafi verið mjög áhugavert að kynnast dóttur sinni á nýjan hátt, kynnast styrkleikum hennar og upplifa hversu fagleg og drífandi hún er. „Þó að ég verði alltaf mamma hennar og hún dóttir mín, þá var gaman að upplifa okkur í nýju hlutverki sem skólasystur. Ég er ekki viss um að fólk sem var með okkur í hópavinnu hafi áttað sig á því að við værum mæðgur fyrr en við sögðum frá því seinna í samstarfinu. Hún kallaði mig til dæmis yfirleitt Ástu en ekki mömmu svona fyrst. Mér finnst samband okkar enn betra eftir þessa reynslu og er ánægð með að við fylgdumst að í þessu.“

Nánar er rætt við mæðgurnar á vef Háskólans á Akureyri hér.

Viðskiptadeild HA býður upp á tvær leiðir í framhaldsnámi í stjórnun. Annars vegar MS gráðu í stjórnun og hins vegar MM gráðu í stjórnun þar sem tekin eru námskeið í stað ritgerðar. Nú er opið fyrir umsóknir og geta áhugasöm kynnt sér námið betur hér:

• Stjórnun MS 
• Stjórnun MM 

COMMENTS