Mærudagar á Húsavík um helgina 

Mærudagar á Húsavík um helgina 

Nú um helgina hefjast Mærudagar, árleg og rótgróin bæjarhátíð Húsvíkinga, þar sem gleði, litadýrð og samfélagsandi ráða ríkjum. Hátíðin spannar fjóra dagai – frá fimmtudegi til sunnudags – og er stútfull af fjölskylduvænum viðburðum, tónlist, menningu og skemmtun fyrir alla aldurshópa.

Skrúðgangan – litagleði og samkennd
Fjölmenn skrúðganga í hverfalitum setur litríkan svip á bæinn og markar upphaf hátíðarhalda er hátíðin verður sett formlega á föstudagslvöldið á Hafnarstétt. Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að taka virkan þátt og skapa minningar sem lifa áfram, sérstaklega fyrir yngstu kynslóðina.

Fjölbreytt dagskrá fyrir alla
Á meðal hápunkta eru:

  • Barnafjör á bryggjunni á laugadaginn – Íþróttaálfinum mætir, það verður karmellukasti frá Freyju og dansatriði frá Steps Dancecenter, Hobby horse sýning og Tónasmiðjan heldur tónleika.Mærudagstónleikar á laugardagskvöldið – 4 klukkustunda tónlistarveisla verður á stóra sviðinu á bryggjunni. Byrjum með bryggjusöng, Kúreki norðursins hann Johnny King mætir, Issi, St. Pete og að lokum verður Færibandið ásamt Stebba Hilmars og Helgu Möller. Kvöldið endar með glæsilegri flugeldasýningu.
  • Karmival stemmning verður á bryggjunni með Götubitum og tveimur tívolíum. Einnig verður  markaðsstemmning, listasýningar, Mæruhlaup, Froðurennibraut og margt fleira. Nóg er af fríum viðburðum í bland við aðra sem kosta.- sjá dagskrá

Tökum þátt – því hátíðin er fyrir samfélagið okkar
Mærudagar eru til að gleðja, efla tengsl og fagna því að búa í skapandi og samhentu bæjarfélagi. Íbúar sem og aðrir gestir eru hvattir til að mæta, taka þátt, heilsast og njóta – hvort sem það er í skrúðgöngu, á tónleikum eða í göngutúr um bæinn sem iðar af lífi og fjöri.

COMMENTS