Málþing til heiðurs dr. Birgi Guðmundssyni
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Síðastliðinn föstudag, 6. nóvember, fór fram málþingið „Frá fjölmiðlum til fræða“ til heiðurs Birgi Guðmundssyni, prófessor emeritus við Félagsvísindadeild HA, í tilefni sjötugsafmælis hans.
„Dagurinn var einstaklega vel heppnaður, fullur af áhugaverðum erindum, skemmtilegum minningum og góðum samverustundum. Við óskum Birgi innilega til hamingju með tímamótin og þökkum öllum sem tóku þátt í að gera daginn svona eftirminnilegan,“ segir á samfélagsmiðlum Háskólans á Akureyri í dag.
Tengdar greinar
Uppfært: 11. nóvember 2026










