Maria nýliði ársins hjá Linköping

Maria nýliði ársins hjá Linköping

Knattspyrnukonan Maria Catharina Ólafsdóttir Gros var verðlaunuð sem nýliði ársins hjá knattspyrnuliði Linköping í Svíþjóð fyrir leik liðsins gegn Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Maria hefur átt flott tímabil þrátt fyrir að Linköping sé fallið úr deildinni.

María, sem var leyst út með blómvendi og ávísun upp á 10.000 sænskar krónur, fagnaði heiðursnafnbótinni með því að skora eitt mark og leggja upp annað í 2-2 jafntefli.

Maria var á dögunum valin í landsliðshóp Íslands og á vef Þór/KA má finna ítarlega umfjöllun um feril hennar hingað til.

COMMENTS