Mazda CX-6e frumsýndur á Akureyri

Mazda á Íslandi frumsýnir nýjan Mazda CX-6e rafbíl laugardaginn 26. september klukkan 12 til 16 í sýningarsölum Brimborgar á Bíldshöfða 8 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri. Gestum verður boðið upp á kaffi og reynsluakstur og söluráðgjafar verða á staðnum til að kynna bílinn.
Mazda CX-6e er rúmgóður rafbíll sem byggir á hönnunarheimspeki Mazda, KODO Soul of Motion. Hann er afturhjóladrifinn, með 258 hestafla rafmótor og 78 kWh LFP drifrafhlöðu. Drægni er allt að 484 km samkvæmt WLTP á 19 tommu felgum og 468 km á 21 tommu felgum. Hraðhleðsla úr 10 í 80 prósent tekur 24 mínútur.

Bíllinn er fáanlegur í tveimur útfærslum, Takumi og Takumi Plus.
Verð er frá 6.890.000 krónum, eða 6.390.000 krónum að teknu tilliti til 500.000 króna rafbílastyrks.
Mazda CX-6e fylgir sex ára verksmiðjuábyrgð og átta ára rafhlöðuábyrgð.
Meðal búnaðar eru 26,45 tommu snertiskjár, hljóðkerfi með 23 hátölurum, panorama glerþak með rafdrifinni gardínu og loftkæld framsæti. Bíllinn býður einnig upp á snjallsímalykil, þráðlaust Apple CarPlay og Android Auto. Farangursrýmið er 468 lítrar og að auki er 80 lítra geymsla undir húddinu.
Meðal öryggisbúnaðar eru 360 gráðu myndavélakerfi, níu öryggisloftpúðar, snjallhemlunarbúnaður, blindpunktsaðvörun og veglínuskynjun.
Hægt er að bóka reynsluakstur fyrirfram og kynna sér bílinn nánar á mazda.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 26. september 2026










