Mikil hálka á Akureyri

Mikil hálka á Akureyri

Mikil hálka er nú á Akureyri og aðstæður eru víða erfiðar bæði á götum og gangstéttum. Á vef Akureyrarbæjar er varað við því að aðstæður geti skapað hætti fyrir gangandi vegfarendur og ökumenn.

Í tilkynningu bæjarins segir að starfsfólk Akureyrarbæjar vinni nú að því að hálkuverja og brjóta upp klaka þar sem þörf er á til að bæta aðstæður sem fyrst.

„Íbúar og aðrir vegfarendur eru beðnir um að fara varlega á meðan aðstæður eru með þessum hætti. Sérstaklega er bent á að aka með aðgát, halda góðri fjarlægð milli bifreiða og sýna aðgát á gangstéttum þar sem klaki getur leynst,“ segir á vef bæjarins.

Haugum af grófum sandi hefur verið komið fyrir á völdum stöðum í bænum þar sem fólk getur sótt sér efni til hálkuvarna. Sand má nálgast á eftirfarandi stöðum:

  • Grendarstöð norðan Ráðhússins
  • Grendarstöð við Bónus í Naustahverfi
  • Grendarstöð við Bónus við Langholt
  • Grendarstöð við Hagkaup
  • Grendarstöð við Merkigil
  • Grendarstöð við Hrísalund
  • Grendarstöð við Byggðaveg

COMMENTS