Mikilvægur áfangi í uppbyggingu listnáms á háskólastigi á Norðurlandi

Mikilvægur áfangi í uppbyggingu listnáms á háskólastigi á Norðurlandi

Háskólinn á Akureyri og Listaháskóli Íslands hafa hlotið styrk til að þróa listnám á háskólastigi á Akureyri, með það að markmiði að auka aðgengi að skapandi námi utan höfuðborgarsvæðisins og styrkja tengsl lista, fræða og samfélags. Þetta kemur fram í tilkynningu Háskólans á Akureyri í dag þar sem segir að mikilvægur áfangi í uppbyggingu listnáms á Norðurlandi sé nú að verða að veruleika.

Kynningarfundur verður haldinn á næstunni þar sem áherslur, fyrirkomulag og framtíðarsýn verkefnisins verða kynnt nánar. Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á listum, menntun og skapandi þróun á Norðurlandi – hvort sem um er að ræða nemendur, fagfólk eða önnur áhugasöm. Fundurinn verður 9. febrúar klukkan 15:00 til 16:30, sjá nánari upplýsingar hér.

Námið er byggt upp í nánu samstarfi háskólanna og tekur mið af sérstöðu Akureyrar og nærsamfélagsins. Í þessum fyrsta fasa verður boðið upp á nokkur námskeið sem verða mismunandi hvað varðar lengd og tímasetningu svo að hægt sé að skoða hvað hentar best.

Samstarfið nýtir styrkleika beggja háskóla: faglega sérþekkingu Listaháskóla Íslands á sviði lista og kennslufræðilega þekkingu Háskólans á Akureyri, sérstaklega í fjarnámi og dreifnámi. Með því verða til nýjar leiðir í verklegu listnámi sem geta orðið fyrirmynd að sambærilegum verkefnum víðar um landið.

„Með þessu samstarfi er stigið stórt skref í átt að fjölbreyttara og aðgengilegra háskólanámi á Akureyri og lagður traustur grunnur að áframhaldandi uppbyggingu listnáms, örnáms og skapandi fræða í nánu samtali við samfélagið,“ segir á vef Háskólans á Akureyri þar sem má finna ítarlegri umfjöllun um málið.

COMMENTS