Minningarbekkur um Þorvald Þorsteinsson afhjúpaður

Skólasystkini listamannsins Þorvaldar Þorsteinssonar úr Menntaskólanum á Akureyri munu afhjúpa minningarbekk úr graníti á afmælisdegi hans þann 7. nóvember. Bekknum hefur verið komið fyrir á Hamarkotstúni, skammt frá bernskuheimili Þorvaldar, við þær slóðir sem hann gekk meðal annars á leið sinni til og frá skóla.
Við afhjúpunina munu Sindri Kristjánsson bæjarfulltrúi og séra Svavar Alfreð Jónsson flytja ávörp. Leikkonan Urður Bergsdóttir mun lesa úr Ósómaljóðum og trúbadorinn Stefnir Ægir Stefánsson flytur lagið Lengi má manninn reyna. Að því loknu munu skólasystkinin Hugrún Sigmundsdóttir og Reynir Viðarsson afhjúpa bekkinn, en athöfnin er opin öllum áhugasömum.
„Þorvaldur Þorsteinsson var einstakur og fjölhæfur listamaður sem fór sínar eigin leiðir í sköpun sinni. Hann var myndlistarmaður, rithöfundur og leikskáld sem hafði einstakt lag á að flétta saman húmor, ímyndunarafli og djúpri mannlegri sýn. Í verkum hans gat hið hversdagslega orðið ævintýralegt og hið fáránlega öðlast óvænta merkingu,“ segir í tilkynningu á Facebook um viðburðinn.
Tengdar greinar
Uppfært: 31. október 2026










