Nemendur á starfsbraut VMA styrkja Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðisins

Nemendur á starfsbraut VMA styrkja Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðisins

Nemendur á starfsbraut VMA í áfanganum Daglegur heimilisrekstur hafa styrkt Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðisins um 100 þúsund krónur. Fjallað er um góðverkið á vef VMA í dag.

Nemendur í áfanganum, sem Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir og Inga Dís Árnadóttir kenna, efndu til nytjamarkaðar snemma í október þar sem seld voru notuð föt og ýmislegt annað gegn vægu verði. Ákveðið var að allur ágóði af markaðnum rynni til góðgerðarmála.

Alls söfnuðust 110 þúsund krónur. Nemendur ákváðu að verja tíu þúsund krónur af þeim fjármunum sem komu inn til að styrkja Krabbameinsfélag Íslands í gegnum Styrkleika VMA og Þórdunu, sem efnt var til 14. október síðastliðinn, og 100 þúsund krónur rynnu til Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðisins.

Á dögunum veitti Kristbjörg Álfhildur Sigurðardóttir, fulltrúi Velferðarsjóðs, hundrað þúsund krónunum viðtöku og þakkaði nemendum fyrir frábært framtak og auðsýndan hlýhug og stuðning sem þeir sýndu sjóðnum og öllu því fólki sem þarf á stuðningi hans að halda.

Á myndinni sem er fengin af vef VMA: Elsa Mjöll Jónsdóttir, fyrir hönd nemenda, afhendir Kristbjörgu Álfhildar Sigurðardóttur, fulltrúa Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðisins, fjármunina sem nemendur söfnuðu.

COMMENTS