Í vikunni fengu fyrsta árs nemar í byggingadeild afhentan veglegan öryggispakka sem í var m.a. hlífðarfatnaður, öryggisskór, hlífðarhjálmur, öryggisgleraugu o.fl. Öryggispakkanum var að sjálfsögðu fagnað að hætti hússins með köku. Nemendur fá fata- og persónuhlífapakkann á afar hagstæðu verði þar sem Verkmenntaskólinn, Byggiðn, FerroZink og birgjar niðurgreiða hann með rausnarlegum afslætti.
Byggingadeildin leggur mikið upp úr öryggismálum því fjölmargt getur farið úrskeiðis ef öryggis er ekki gætt í hvívetna. Skólinn gerir kröfu um að allir séu í öryggisskóm og noti viðhlítandi öryggishlífar á verkstæði byggingadeildar, við smíði frístundahúsa utan dyra og í heimsóknum nemenda á vinnustaði utan skólans. Fatnaðinn geta nemendur geymt í læstum skápum sem þeir hafa aðgang að í byggingadeild.
„Full ástæða er til að þakka Byggiðn og Ferrozink og birgja þennan mikilvæga og góða stuðning við byggingadeild VMA og nemendur hennar. Stuðningur öflugra bakhjarla við námið er skólanum og nemendum hans ómetanlegur,“ segir á vef VMA.


COMMENTS