Norðlensk bókaútgáfa fagnar nýrri bók á Skáld á laugardaginn

Norðlenska bókaútgáfan Söguspor sendir nú frá sér bókina Pabbi – sagan þín, ári eftir að Heiðbjört Ósk gaf út sína fyrstu bók, Mamma – sagan þín. Útgáfunni verður fagnað á heimavelli, í setustofunni á Skáld Hótel á Akureyri, laugardaginn 7. nóvember á milli klukkan 15:30 og 17:00. Allir eru velkomnir.
Pabbi – sagan þín er í raun framhald af bókinni Mamma – sagan þín kom út í fyrra og hlaut góðar viðtökur. Hugmyndin með bókinni er að hún sé rými fyrir föður til að skrifa söguna sína og varðveita hana þannig fyrir börnin sín, barnabörnin og komandi kynslóðir. Bókin er innbundin í dökkbláu, stílhreinu bandi og kemur í vandaðri gjafaöskju. Bækurnar tvær sóma sér vel hlið við hlið í bókahillunni.
Notaleg stund á Skáld
Útgáfuhófið fer fram í setustofunni á Skáld Hótel á Akureyri, laugardaginn 7. nóvember á milli 15:30 og 17:00. Þar verða bækurnar fallega innpakkaðar til sölu og léttir drykkir í boði við upphaf viðburðarins.
Pabbabrandari og Mamma veit best
Útgáfan er unnin í samstarfi við Skáld Hótel Akureyri. Í tilefni hennar verða tveir sérstakir kokteilar til sölu á barnum Abba-Labba-Lá alla útgáfuvikuna, 7.–14. nóvember.
Pabbabrandari – bourbon-viskí, kanill, sítrus, Angostura-bitter og eplasafi. Ávísað fyrir pabba sem eiga alltaf góð ráð á lager, segja misgóða brandara og þrá ekkert heitar en fimm mínútna frið og ró. Mögulegar aukaverkanir: óumbeðnar lífsviskur, stórlega ýktar veiðisögur og háværar yfirlýsingar um að þetta sé besti dagur allra tíma.
Mamma veit best – mandarína, estragon, bláberjasulta, límóna og eggjahvíta. Ávísað fyrir mæður sem hafa svarað „Mamma!“ 47 sinnum fyrir morgunmat og eiga svo sannarlega skilið kafla sem er alfarið helgaður þeim sjálfum. Mögulegar aukaverkanir: valbundin heyrn, samtöl án truflana og að gleyma því hvar börnin eru í fimm dásamlegar mínútur.
Nánari upplýsingar um bækurnar má finna á soguspor.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










