Barnavöruverslunin Kara Kids opnaði verslun í Skipagötu 1 á Akureyri í vikunni. Hjónin Lovísa Sif Einarsdóttir og Árni Fannar Guðmundsson eru eigendur nýju verslunarinnar.
Lovísa Sif segist lengi hafa haft áhuga á barnavörum og öllu sem þeim tengist. Hún segir að á Akureyri hafi vantað meiri fjölbreytni í barnavörur og að margir foreldrar á svæðinu hafi þurft að panta á netinu eða sækja þjónustuna til höfuðborgarsvæðisins.
„Við sáum tækifæri til að bæta aðgengi að slíkum vörum hér fyrir norðan og ákváðum að svara þeirri þörf með opnun Kara Kids. Þegar ég fór að skoða það nánar að opna slíka verslun og ræða við aðra foreldra varð mér ljóst að eftirspurnin var raunverulega til staðar. Þá ákvað ég að láta slag standa og opna verslunina. Það hefur verið mjög skemmtilegt en líka lærdómsríkt ferli að koma þessu á laggirnar og sjá hugmyndina verða að veruleika,“ segir Lovísa í spjalli við Kaffið.is.
Hún segir markmið Kara Kids að bjóða upp á vörur sem sameina gæði, fallega hönnun og notagildi.
„Hjá Kara Kids leggjum við áherslu á vandaðar og fallegar barnavörur frá þekktum vörumerkjum. Þar má til dæmis finna barnfatnað frá dönskum vörumerkjum fyrir börn á aldrinum 0–8 ára, ullarfatnað frá Joha, barnabílstóla og kerrur frá Silver Cross, svefnpoka frá Love to Dream og viðarleikföng frá Small Foot, ásamt ýmsum öðrum barnavörum.“
Vöruúrvalið hjá Kara Kids var valið út frá niðurstöðum óformlegrar markaðskönnunar sem Lovísa framkvæmdi í Facebook-hópnum „Múttur á Akureyri“ síðastliðið haust.
„Foreldrar deildu hvaða vörur þau myndu helst vilja sjá í verslun hér á svæðinu. Það var mjög gagnlegt að fá svona beina innsýn frá foreldrum á svæðinu og reyna að byggja vöruúrvalið á því sem fólk raunverulega vill sjá hér fyrir norðan,“ segir Lovísa.
Kara Kids opnaði 12. mars síðastliðinn. Lovísa segir að viðbrögðin við opnuninni hafi vægast sagt verið frábær og að þau hafu farið fram úr björtustu vonum hjónanna.
„Það hefur verið mjög ánægjulegt að sjá hversu margir hafa komið við, skoðað verslunina og sýnt henni mikinn áhuga. Við höfum fengið afar góðar móttökur frá fólki á svæðinu og erum mjög þakklát fyrir þann stuðning sem við höfum fundið fyrir.“
„Það er greinilegt að margir hafa beðið eftir meiri fjölbreytni í barnavörum hér fyrir norðan og það er mjög gaman að sjá hversu jákvæð viðbrögðin hafa verið. Við hlökkum til að halda áfram að þróa verslunina á næstu misserum og bæta smám saman við fleiri spennandi vörum fyrir fjölskyldur á svæðinu,“ segir Lovísa að lokum.


COMMENTS