Ný umferðarljós við gatnamót Drottningarbrautar og Austurbrúar voru tekin í notkun síðastliðinn þriðjudag, 2. september. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Ljósin eru umferðarstýrð og stillt þannig að grænt ljós er venjulega fyrir umferð um Drottningarbrautina. Þegar bílar koma frá Austurbrú eða gangandi vegfarendur ýta á gangbrautartakka, skiptir kerfið yfir á grænt ljós fyrir þá eftir stutta bið.
„Markmið með uppsetningu ljósanna er að auka umferðaröryggi á svæðinu og bæta aðstæður fyrir gangandi vegfarendur,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.


COMMENTS