Skóverslunin Steinar Waage opnaði nýja verslun á Glerártorgi á Akureyri á föstudaginn og verslanir Ellingsen og AIR flytja frá Hvannavöllum yfir í sama húsnæði á Glerártorgi.
Steinar Waage hóf upphaflega rekstur árið 1957 og skóverslunin hefur verið rótgróið vörumerki á höfuðborgarsvæðinu í áratugi.
„Í dag eru verslanir Steinar Waage þrjár talsins, í Kringlunni, Smáralind og frá og með deginum í dag á Glerártorgi á Akureyri. Steinar Waage selur m.a. skó frá vörumerkjunum Ecco, Skechers, Lloyd, Tamaris, Piano, Gabor, Birkenstock, Rieker og fleirum,“ segir í tilkynningu.
Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S, segist mjög spenntur fyrir opnun verslananna á Glerártorgi.
„Steinar Waage er rótgróið vörumerki á höfuðborgarsvæðinu, enda meðal elstu og þekktustu skóverslunum landsins og Ellingsen og Air munu halda áfram að veita framúrskarandi úrval af útivistar- og íþróttafatnaði“, segir Pétur Þór.


COMMENTS