Á síðasta ári var í gangi verkefni um skráningu gönguleiða á Norðurlandi eystra, sem unnið var af Markaðsstofu Norðurlands. Í verkefninu voru skráðar 20 gönguleiðir um allt Norðurland eystra sem stuðla að öruggri og ánægjulegri útivist.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SSNE þar sem segir að markmið verkefnisins hafi verið að koma á miðlægu og samræmdu skráningarkerfi fyrir gönguleiðir á svæðinu og tryggja ferðafólki áreiðanlegar upplýsingar til að auðvelda val á leiðum sem henta bæði byrjendum og reyndari göngufólki.
Verkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra, en árlega velur stjórn SSNE verkefni sem styðja við markmið Sóknaráætlunar svæðisins. Skráning gönguleiða tengist meðal annars markmiði um bætta lýðheilsu sem kom ný inn í gildandi Sóknaráætlun.
Niðurstöður verkefnisins eru nú aðgengilegar á vefnum Upplifðu Norðurland, þar sem finna má 35 fjölbreyttar gönguleiðir um allt Norðurland. Þar má skoða leiðir eftir erfiðleikastigi, lengd og staðsetningu, ásamt gagnvirku korti sem auðveldar skipulagningu ferða. Vefurinn byggir á sameiginlegum gagnagrunni Ferðamálastofu.


COMMENTS