Nýr og alrafmagnaður Kia EV5 verður frumsýndur hjá Höldi á Akureyri og hjá umboðsaðilum Kia um land allt, næstkomandi laugardag, 28. febrúar, klukkan 12 til 16.
EV5 kemur með allt að 530 km drægni og er einnig væntanlegur fjórhjóladrifinn. EV5 er hannaður til að gera hverja ferð bæði ánægjulegri og öruggari með nýjustu akstursaðstoðarkerfum Kia. EV5 er því með einstaklega fágað og fjölhæft innanrými hugsað fyrir alla fjölskyldumeðlimi.
Verð frá 7.690.777 kr. með rafbílastyrk (fullt verð 8.190.777 kr.)
„EV5 er bæði góð og mikilvæg viðbót við rafmagnað úrval hér á landi því hann er í vinsælasta stærðarflokki okkar íslendinga. EV5 hentar vel fyrir íslenskar aðstæður enda með góða veghæð ásamt rúmgóðu innanrými fyrir alla fjölskylduna. Við höfum fundið fyrir mikilli eftirvæntingu fyrir EV5 svo við hlökkum til að fá loksins að frumsýna hann hér á landi,“ segir Kristmann F. Dagsson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Bílaumboðinu Öskju.
Rúmgóður með fágað innanrými í fremstu röð
Nýr Kia EV5 er útbúinn nýjasta ccNC-leiðsögukerfi Kia og inniheldur meðal annars þrískiptan Panoramic Wide Display skjá. Þar sameinast 12,3 tommu mælaborð, 12,3 tommu margmiðlunarskjár og 5,3 tommu skjár þar sem hægt er að stilla hitastig og loftræstingu í bílnum.
Farþegarýmið kemur vel til móts við praktískar þarfir. Aftursætin má leggja alveg niður og þannig hámarka farangursrýmið, sem nær allt að tveggja metra lengd. Aðrir skipulagseiginleikar eins og skúffulaga geymslurými í miðjustokki gera EV5 tilvalinn fyrir bæði borgarakstur og lengri ferðalög.
Framúrskarandi afköst við fjölbreyttar aðstæður
Nýr Kia EV5 er byggður til að mæta hörðum kröfum Evrópubúa. Allt frá norrænum vetrum til sumra við Miðjarðarhafið. Hvort sem um er að ræða daglegar erindagjörðir eða lengri ferðalög.
EV5 er búinn háþróaðri aflrás og 81,4 kWh rafhlöðu, sem skilar áreiðanlegri drægni og hagkvæmum akstri. Hægt er að velja úr þremur útfærslum: Air, Earth og GT-Line.
EV5 kemur einnig með V2L tækni (Vehicle-To-Load) sem gerir bílnum kleift að sjá öðrum raftækjum fyrir hleðslu.
Frumsýning EV5 er hjá umboðsaðilum Kia um land allt:
- Sýningarsal Kia á Íslandi að Krókhálsi 13 – Reykjavík
- Askja Reykjanesbæ – Reykjanesbæ
- Höldur bílasala – Akureyri
- BVA – Egilsstöðum
- Bílasala Selfoss – Selfoss
Bílaumboðið Askja er umboðsaðili Kia á Íslandi.


COMMENTS