Nýtt fagráð um líknarþjónustu hefur verið skipað til þriggja ára í samstarfi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og Heilsuverndar (HV). Markmið ráðsins er að efla samvinnu heilbrigðisstofnana og styrkja líknarþjónustu á Norðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAk í dag.
Þar segir að skipun fagráðsins sé liður í innleiðingu fimm ára aðgerðaráætlunar heilbrigðisráðuneytisins frá 2021 þar sem lögð er áhersla á að líknarmiðstöðvar styðji við þróun og miðlun þekkingar í líknarmeðferð, bæði í heimahjúkrun og á hjúkrunarheimilum, og að byggt verði upp öflugt tengiliðanet milli heilbrigðisstofnana.
Líknarmiðstöð var formlega stofnuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri í ársbyrjun 2023 og hefur það hlutverk að efla samvinnu fagstétta í sérhæfðri líknarmeðferð, styrkja teymisvinnu og þróa þjónustuna í samræmi við þarfir sjúklinga og aðstandenda.
„Með skipun fagráðsins er stigið mikilvægt skref í að efla samræmda og heildstæða líknarþjónustu á Norðurlandi, þar sem áhersla er lögð á samstarf, þekkingarmiðlun og bætta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur,“ segir Dóra Björk Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Líknarmiðstöðvar SAk og formaður fagráðsins, á heimasíðu SAk.
Hlutverk fagráðsins
Fagráðið mun vinna að því að:
- samhæfa og efla líknarmeðferð á Norðurlandi með auknu samstarfi heilbrigðisstofnana
- stuðla að þróun líknarmeðferðar og nýtingu gagnreyndrar þekkingar
- efla almenna líknarþjónustu við fjölbreytta sjúklingahópa og bæta aðgengi að sérhæfðri líknarþjónustu
- styrkja ráðgjafaþjónustu í sérhæfðri líknarmeðferð, meðal annars með eflingu líknarráðgjafateymis SAk
- auka fræðslu og þekkingu heilbrigðisstarfsfólks á líknarmeðferð
- efla þekkingu almennings á líknarþjónustu
- styrkja samstarf við háskólasamfélagið
Skipan fagráðsins
Í fagráðið hafa eftirfarandi fulltrúar verið skipaðir til þriggja ára:
Silja Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Heilsuvernd
Dóra Björk Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Líknarmiðstöðvar SAk og formaður fagráðs
Valgerður Þorsteinsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga SAk
Sólveig Pétursdóttir, yfirlæknir endurhæfingarlækninga SAk
Arna Rún Óskarsdóttir, öldrunarlæknir HSN
Hilda Hólm, gæðastjóri HSN
Bryndís Björg Þórhallsdóttir, forstöðumaður hjúkrunar hjá Heilsuvernd


COMMENTS