Nýtt kynningarmyndband fyrir áfangastaðinn Norðurland komið í loftið

Nýtt kynningarmyndband fyrir áfangastaðinn Norðurland komið í loftið

Nýtt kynningarmyndband fyrir áfangastaðinn Norðurland er komið í loftið. Myndbandið var unnið af Markaðsstofu Norðurlands í sumar og í tilkynningu frá markaðsstofunni segir að myndbandið endurspegli fjölbreytta ferðaþjónustu á Norðurlandi. Myndbandið má sjá neðst í fréttinni.

Þráinn Kolbeinsson tók upp allt nýtt efni og klippti saman. Sem fyrr geta samstarfsfyrirtæki nýtt efnið úr myndbandinu í sitt kynningarefni, á vef Markaðsstofu Norðurlands segir að best sé að hafa samband við Rögnvald Má Helgason á netfanginu rognvaldur@nordurland.is.

COMMENTS