Nýtt nafn og stækkun um 3000 fermetra hjá JarðböðunumMynd: Þingeyjarsveit

Nýtt nafn og stækkun um 3000 fermetra hjá Jarðböðunum

Jarðböðin í Mývatnssveit hafa opinberað nýtt nafn á ensku og vinna í því að stækka húsakostinn úr 1100 fermetrum í um 4000 fermetra um þessar mundir. Enska nafninu var breytt úr Mývatn Nature Baths í Earth Lagoon Mývatn en böðin munu áfram vera Jarðböðin á íslensku.

Guðmundur Þór Birgisson segir í viðtali við heimasíðu Þingeyjarsveitar að vilji hafi verið fyrir því innan fyrirtækisins að færa enska nafnið nær því sem böðin heita á íslensku.

„Okkur fannst Nature Baths ekki nægjanlega lýsandi fyrir staðinn, og höfum unnið í því um nokkurt skeið að velja nýtt nafn á ensku. Það var tilvalið að rúlla því út samhliða breytingum og stækkun á staðnum. Með þessu er svo nýtt merki, og svo ég nýti tækifærið og útskýri útlit þess, þá kemur hugmyndin frá einstökum jarðmyndunum á svæðinu sem kallast túffstabbar. Það eru einskonar öskulög sem sjást til að mynda mjög vel norðan við Hverfjall/fell,“ segir Guðmundur í viðtali við heimasíðu Þingeyjarsveitar.

Til vinstri: Nýtt merki Jarðbaðanna / Earth Lagoon. Til hægri: Merki Jarðbaðanna og Mývatn Nature Baths sem heyrir nú sögunni til. Myndir: Þingeyjarsveit

Framkvæmdir við nýtt húsnæði hafa staðið yfir síðustu fimm ár og stefnt er á opnun nýrra Jarðbaða í apríl á næsta ári. Núverandi húsnæði með veitingasölu, móttöku og búningsklefum verður fjarlægt. Lokað verður í böðunum frá 1. janúar vegna framkvæmdanna og opnað aftur í vor.

„Þetta er heljarinnar breyting hjá okkur, við færum okkur alfarið yfir í nýtt húsnæði. Eitt af því sem verður nýtt, er að auk þess að bjóða upp á töluvert meira pláss í búningsklefum – verða þrír mismunandi klefar í boði. Eða kannski þrjár mismunandi upplifanir, réttara sagt,“ segir Guðmundur.

„Það verður hefðbundinn búningsklefi, en þar verður samt meira pláss heldur en í núverandi aðstöðu og í boði að vera í lokaðri sturtu, fyrir þau sem vilja það. Svo verður svokölluð Kjarnaupplifun, en sá klefi verður í anda nýs nafns – mikið af jarðmyndunum og hrauni er nýtt í þann klefa sem verður niðurgrafinn og útveggir klefans og skipting eru hraunveggir. Einnig er mjög fallegur hraunveggur sem tekur á móti gestum og leiðir inn í klefana.“

Í umfjöllun á heimasíðu Þingeyjarsveitar segir að eftirspurn hafi aukist eftir lúxusupplifun í Jarðböðunum og Guðmundur segir að í nýju böðunum verði einnig boðið upp á svokallaða Kyrrðarupplifun til að mæta þeim hópi ferðamanna.

„Þá erum við með sex einkaklefa, sem eru fyrir tvo gesti hver. Þeir sem kaupa sér aðgang að þessum klefum fá aðgang að einkalóni. Með þessum pakka fylgir líka aðgangur að arinstofu með hvíldar- og slökunarherbergi.“

„Nýr veitingastaður Jarðbaðanna verður með uppfærðum matseðli, auk þess sem sérstakur matseðill verður í boði fyrir gesti Kyrrðarupplifunar. Við verðum áfram með súpu, brauð og salat, en það verður líka hægt að panta létta rétti af matseðli,“ bætir Guðmundur við að lokum, en hann segir að mikill spenningur sé meðal starfsfólks, nú þegar sér fyrir endann á framkvæmdum og styttast fer í opnun á glænýjum Jarðböðum.

COMMENTS