Nýtt skyggniröntgentæki tekið í notkun á SAk

Nýtt skyggniröntgentæki tekið í notkun á SAk

Í lok mars var nýtt og fullkomið skyggniröntgentæki, Canon NRT Celex, tekið í notkun á myndgreiningardeild Sjúkrahússins á Akureyri. Tækið leysir af hólmi eldra tæki sem hafði verið í notkun í níu ár og tíðar bilanir síðasta árið kallaði á endurnýjun. Þetta kemur fram á vef Sjúkrahússins á Akureyri.

„ Nýja tækið markar mikla tækniuppfærslu og býður upp á fjölbreyttari og nákvæmari rannsóknarmöguleika en áður. Celex sameinar stafræna skyggnimyndatöku og hefðbundna röntgenmyndatöku í einu tæki og býður upp á sjálfvirkar stillingar, betra aðgengi fyrir sjúklinga og bætt myndgæði með lægri geislun. Með tækinu verða möguleikar myndgreiningardeildar til að framkvæma sérhæfðar rannsóknir meiri en áður – meðal annars meltingarannsóknir, þvagfærarannsóknir og verkjastillingar/deyfingar og mun það draga úr þörf fyrir að senda sjúklinga í slíkar rannsóknir til höfuðborgarsvæðisins. Þá er gert ráð fyrir því að innan árs verði hægt að fara gervigreindaruppfærslu, sem bætir myndgæði enn frekar, ásamt því að draga úr geislun,“ segir í tilkynningu SAk.

Með tilkomu Canon Celex höfum við tekið stórt skref fram á við í bæði tæknilegum búnaði og þjónustu við sjúklinga. Myndgæðin eru frábær, geislaskammturinn lægri og vinnuflæðið orðið mun skilvirkara fyrir starfsfólkið. Tækið nýtist einnig í hefðbundna röntgenmyndatöku, sem eldra tækið gerði ekki. Það sem skiptir þó mestu máli er að við getum nú boðið upp á fleiri og nákvæmari rannsóknir hér heima, sem áður þurfti að leita til höfuðborgarinnar með,“ segir Elvar Örn Birgisson, deildarstjóri myndgreiningardeildar SAk.

Innleiðingu allra rannsóknaraðferða með nýja tækinu verður lokið í lok sumars 2025, en það er þegar komið í virka notkun og nýtist við fjölbreyttar rannsóknir.

COMMENTS