Nýtt útivistarsvæði á Svalbarðsströnd

Nýtt útivistarsvæði á Svalbarðsströnd

Svalbarðsstrandarhreppur vinnur um þessar mundir að því að koma upp nýju útivistarsvæði. Í tilkynningu á vef Svalbarðsstrandar segir að markmiðið sé að skapa skemmtilegan samkomustað fyrir íbúa og gesti þar sem allir geta notið útiveru og samveru í fallegu umhverfi.

Á svæðinu verður byrjað á að reisa grillhús sem nýtist til fjölskyldu- og vinasamkoma, ásamt því að gefa tækifæri til skjóls við ótrygg veður. Einnig verður komið upp aparólu og gerður göngustígur að grillhúsi.

„Með þessu verkefni er verið að leggja áherslu á að efla samfélagið, hvetja til útiveru og styrkja aðstöðu til heilbrigðrar og ánægjulegrar samveru. Við hlökkum til að sjá svæðið taka á sig mynd og vonum að íbúar taki því fagnandi,“ segir í tilkynningu Svalbarðsstrandar.

COMMENTS