Opið fyrir umsóknir fyrir A! Gjörningahátíð

Opið fyrir umsóknir fyrir A! Gjörningahátíð

Nú er opið fyrir umsóknir í tengslum við A! Gjörningahátíð 2026 á netfangindu a@listak.is. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega. 

Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Listnámsbrautar VMA og Myndlistarfélagsins á Akureyri og eru viðburðir haldnir í hinum ólíku menningarhúsum bæjarins.

A! er einstök hátíð á landsvísu og snýr eingöngu að gjörningalist. Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum, dans- og leikhúsfólki og eru þeir innlendir sem erlendir. Á hverju ári breytir hátíðin Akureyri í suðupott spennandi gjörninga. Ókeypis er inn á alla viðburði.

Listrænn stjórnandi: Sara Bjarnason

COMMENTS