Undanfarnar tvær vikur hefur listakonan Jessica Libor dvalið í gestavinnustofu Listasafnsins á Akureyri. Föstudaginn 13. mars, frá klukkan 16 verður vinnustofan opin og má þá sjá afrakstur vinnu hennar á meðan dvölinni stóð og eiga samtal við listakonuna um ferlið og verkin.
Jessica Libor (f. 1987) er bandarísk listakona sem í verkum sínum rannsakar kvenlega sjálfsmynd og kraft frásagnarinnar í mótun persónulegrar goðafræði. Hún lauk meistaragráðu í myndlist frá Pennsylvania Academy of the Fine Arts árið 2014 og hefur einnig stundað klassískt nám við Grand Central Atelier og Florence Academy of Art.
Libor er búsett í Fíladelfíu en starfar einnig í New York og hefur haldið úti virku vinnustofustarfi frá útskrift. Verk hennar sækja innblástur í ævintýri, goðsagnir og táknræna frásagnarhefð, sem eru endurtekin stef í listsköpun hennar.
Listamannadvöl hefur verið mikilvægur hluti af starfi hennar; árin 2022 og 2023 dvaldi hún meðal annars í vinnustofum í Skotlandi og Frakklandi þar sem hún dýpkaði rannsóknir sínar á þjóðsögum og mýtum.
Árið 2023 hélt hún einkasýningar í La Serre Wangari í París og Look Listen Gallery í Fíladelfíu. Verk hennar hafa einnig verið sýnd á fjölmörgum söfnum og sýningarrýmum og eru í einkasöfnum víða um heim.



COMMENTS