Fulltrúar aðildarfélaga KÍ á Akureyri og nágrenni hafa boðið til opins fundar um stöðu kjaramála kennara á morgun, miðvikudaginn 26. febrúar, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma.
Fundurinn verður klukkan 17:00 í Brekkuskóla á Akureyri.
Fulltrúar aðildarfélaga KÍ á Akureyri og nágrenni skora á eftirtalda aðila að mæta á fundinn:
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Ásthildur Lóa Þórsdóttir mennta- og barnamálaráðherra
Kristín Jóhannesdóttir sviðsstjóri Fræðslu- og lýðheilsusviðs
Andri Teitsson
Jón Hjaltason
Halla Björk Reynisdóttir
Heimir Örn Árnason
Hlynur Jóhannsson
Hulda Elma Eysteinsdóttir
Lára Halldóra Eiríksdóttir
Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Hilda Jana Gísladóttir
Gunnar Már Gunnarsson
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir
Þingmenn Norðausturkjördæmis:
Logi Einarsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Jens Garðar Helgason
Sigurjón Þórðarson
Ingibjörg Ólöf Isaksen
Eydís Ásbjörnsdóttir
Ingvar Þóroddsson
Þorgrímur Sigmundsson
Njáll Trausti Friðbertsson
Þórarinn Ingi Pétursson
Þið sem komist ekki á fundinn, vinsamlegast sendið varamann.
Fulltrúar fjölmiðla eru einnig boðaðir.
Í tilkynningu frá fulltrúum aðildarfélaga KÍ á Akureyri og nágrennis segir:
Á fundinum verður fjallað um þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er og kjörnir fulltrúar verða m.a. beðnir um að svara eftirfarandi spurningum:
Eru þið tilbúin til að leggja ykkar að mörkum til að standa við samkomulagið sem gert var við kennara árið 2016?
Hvers vegna teljið þið að kennarar vilji hafa forsenduákvæði í kjarasamningi?
Hvernig viljið þið beita ykkur við lausn kjaradeilunnar?
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að reka skóla án kennara?
Við hvetjum alla sem láta sig skólamál varða til að mæta og taka þátt í gagnlegri og uppbyggilegri umræðu.


COMMENTS