Óstaðbundin störf til umræðu á Lögfræðitorgi

Stefna stjórnvalda um að fjölga störfum hjá hinu opinbera óháð búsetu verður til umræðu á næsta Lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri, miðvikudaginn 30. september. Fjallað verður um framkvæmd stefnunnar, réttindi og skyldur í óstaðbundnum störfum og þau tækifæri og áskoranir sem þeim fylgja.
Lögfræðitorg er vettvangur Lagadeildar Háskólans á Akureyri fyrir fræðslu, samtal og miðlun þekkingar milli háskóla og samfélags. Þar eru tekin fyrir fjölbreytt lögfræðileg málefni, ekki síst þau sem eru ofarlega á baugi í samfélagsumræðunni hverju sinni.
„Með Lögfræðitorgi viljum við skapa vettvang þar sem háskólinn og samfélagið geta komið saman og rætt málefni líðandi stundar frá ólíkum sjónarhornum. Við leggjum áherslu á að torgin séu opin öllum og að þar mætist fræðileg þekking, reynsla og samfélagsleg umræða,“ segir Ingibjörg Ingvadóttir, aðjúnkt og brautarstjóri við Lagadeild HA.
Aðgangur að opinberum störfum óháð búsetu
Að þessu sinni verður sjónum beint að óstaðbundnum störfum hjá hinu opinbera. Stjórnvöld hafa um árabil lagt áherslu á að fjölga störfum sem hægt er að sinna óháð búsetu og þannig auka aðgengi fólks um land allt að opinberum störfum.
Málefnið hefur ekki síst þýðingu fyrir fólk sem býr utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem stór hluti opinberra starfa er staðsettur.
Á Lögfræðitorginu verður viðfangsefnið skoðað frá þerum ólíkum sjónarhornum.
Hólmfríður Sveinsdóttir, verkefnastjóri byggðamála hjá innviðaráðuneytinu, fjallar um stefnu stjórnvalda varðandi óstaðbundin störf og hvernig gengið hefur að hrinda henni í framkvæmd.
Hafdís Erna Ásbjarnardóttir, aðjúnkt við Lagadeild HA og sérfræðingur í vinnurétti, fjallar um óstaðbundin störf út frá fréttindum og skyldum starfsfólks og atvinnurekenda.
Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, fjallar um tækifæri og áskoranir sem fylgja óstaðbundnum störfum og rannsóknir sem hún hefur unnið á þessu sviði.
Öll velkomin á Lögfræðitorg
Lögfræðitorg eru haldin í staðlotum Lagadeildar, tvisvar á hvoru misseri, og oftar þegar tilefni er til. Lögfræðitorg eru öllum opin og þátttaka er endurgjaldslaus og eru torgin sem og aðrir viðburðir háskólans alltaf auglýst á unak.is sem og á Facebook síðu HA.
Nánari upplýsingar og streymi fyrir Lögfræðitorgið um óstaðbundin störf eru hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 29. september 2026










