Patti Smith kemur til Akureyrar

Patti Smith kemur til Akureyrar

Tónlistarkonan Patti Smith kemur til Íslands vorið 2026 ásamt hljómsveit og heldur tónleika í Eldborg Hörpu og í Hofi á Akureyri. Tónleikar hennar í Hofi verða 2. júní næstkomandi klukkan 20.00.

Í tilkynningu segir:

Patti Smith, fædd í Chicago og alin upp í New Jersey, flutti til New York árið 1967 og hefur síðan orðið ein áhrifamesta listakona sinnar kynslóðar, bæði sem tónlistarmaður, skáld og myndlistarkona.

Hún sló í gegn með plötunni Horses árið 1975 og á að baki langan lista plata og bóka, þar á meðal Just Kids, sem hlaut bandarísku bókmenntaverðlaunin árið 2010. Hún hefur verið tilnefnd til Grammy- og Golden Globe-verðlauna og hlotið fjölmargar alþjóðlegar heiðursviðurkenningar, meðal annars Polar-verðlaunin og árið 2007 var hún tekin inn í frægðarhöll rokksins (Rock and Roll Hall of Fame).

Verk hennar, þar á meðal ljósmyndir og innsetningar, hafa verið sýnd víða um heim og hún hefur einnig hlotið heiðursdoktorsnafnbætur frá ýmsum háskólum. Smith er ötull talsmaður mannréttinda- og umhverfismála, einkum í gegnum samtökin Pathway to Paris, og býr nú í New York þar sem hún heldur áfram að skrifa, flytja tónlist og birta reglulega efni á Substack.

Miðasala hefst 2. desember næstkomandi. Tónleikar hennar á Íslandi verða í Eldborg Hörpu sunnudaginn 31. maí klukkan 20 og eins og áður segir í Hofi á Akureyri þriðjudaginn 2. júní klukkan 20. 

Miðar í Hofi fást hér

Miðar í Eldborg fást hér

COMMENTS