Rafiðnaðarsamband Íslands styrkir Grófina

Rafiðnaðarsamband Íslands styrkir Grófina

Um liðna helgi hlaut Grófin Geðrækt á Akureyri styrk frá Rafiðnaðarsambandi Íslands upp á 500 þúsund krónur.

Grófin geðrækt er gjaldfrjálst úrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á öllum stigum bataferlisins sem vilja auka virkni, komast í góðan félagsskap og stunda sjálfsvinnu á jafningjagrundvelli. Markmið Grófarinnar er meðal annars að skapa tækifæri fyrir þá sem glíma við geðraskanir til að vinna í sínum bata á eigin forsendum og á eigin ábyrgð, sem og að skapa vettvang fyrir alla þá sem vilja vinna að geðrækt á jafningjagrunni, hvort sem þeir eru notendur geðheilbrigðisþjónustunnar, fagaðilar, aðstandendur eða einfaldlega áhugafólk um framfarir í geðheilbrigðismálum.

Hér er hægt að skoða bækling um Grófina.

COMMENTS