Samstarf Myndlistarfélagsins á Akureyri við Føroysk Myndlistarfólk

Samstarf Myndlistarfélagsins á Akureyri við Føroysk Myndlistarfólk

Á morgun, þriðjudaginn 17. mars klukkan 16:15 munu myndlistarmennirnir Brynhildur Kristinsdóttir og Kristján Helgason halda þriðjudagsfyrirlestur á Listasafninu á Akureyri þar sem þau munu kynna JÁ JÁ sýningu Myndlistarfélagsins í Gallerí Havnará í Þórshöfn.

Í fyrirlestri sínum munu þau einnig fjalla um samstarf Myndlistarfélagsins við myndlistarmenn í Færeyjum, nánar tiltekið Føroysk Myndlistafólk, sem eru sambærileg samtök og Samband íslenskra myndlistarmanna á Íslandi.

Enginn aðgangseyrir.

COMMENTS