Ingibjörg Isaksen, alþingismaður og formaður þingflokks Framsóknar, krafðist þess, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi, að heilbrigðisráðherra grípi þegar í stað til aðgerða til að tryggja bráðaþjónustu fyrir íbúa Norðurlands og allt landið. Ingibjörg sagði verstu sviðsmyndina vera að raungerast.
„Eftir 22. desember er búið að gefa það út að það verði enginn sérfræðingur, enginn lyflæknir, á vakt og því verður mikilvægur hluti bráðaþjónustu og lyflækninga ómannaður á Sjúkrahúsinu á Akureyri.“
Ingibjörg minnti á að lögbundið hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri væri að veita almenna og sérhæfða þjónustu í nær öllum sérgreinum, auk þess að vera varasjúkrahús landsmanna þegar Landspítalinn stendur höllum fæti. Sjúkrahúsið er jafnframt miðstöð sérhæfðrar þjónustu fyrir heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi og lykilaðili í sjúkraflugi landsins.
„Sjúkrahúsið á Akureyri er hornsteinn heilbrigðisþjónustunnar á Norðurlandi og eitt af grundvallaröryggistækjum heilbrigðiskerfisins,“ sagði Ingibjörg meðal annars og ítrekaði að hvorki stjórn sjúkrahússins né starfsfólkið bæri ábyrgð á ástandinu; þar hafi fólk unnið „þrekvirki við ómögulegar aðstæður“ til að halda þjónustunni gangandi.
Ingibjörg beindi spurningum til heilbrigðisráðherra: Hvernig hyggist ráðherra bregðast við ástandinu? Hver eru raunveruleg áform um að tryggja mönnun bæði til skamms tíma og lengri framtíðar?


COMMENTS