Selja skólapeysur til styrktar minningarsjóð Bryndísar Klöru

Selja skólapeysur til styrktar minningarsjóð Bryndísar Klöru

Nemendafélagið Þórduna í VMA hefur sett af stað sölu á skólapeysum og í ár er sérstök áhersla lögð á bleiku peysurnar, þar sem allur ágóði af sölu þeirra rennur í minningarsjóð Bryndísar Klöru. Að auki eru í boði bæði gráar og bláar peysur í fjölbreyttum stærðum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef skólans í dag.

„Mér fannst mikilvægt að við í VMA tækjum þátt í að styrkja minningarsjóð Bryndísar Klöru og vekja um leið athygli á honum. Það er rúmt ár liðið frá þessum hörmulega atburði og þegar ég sá bleika litinn sem var í boði, hugsaði ég að það væri fallegt að styrkja þennan sjóð,“ segir Hulda Þórey Halldórsdóttir, formaður Þórdunu, í samtali við VMA.is.

Forsala á peysunum er þegar hafin og samkvæmt umfjöllun skólans hefur hún gengið ótrúlega vel. Stjórn Þórdunu munu taka við pöntunum í hádegisfrímínútum í dag og á morgun.  Einnig verður hægt að panta peysur HÉR

Verðlisti:

  • Hettupeysa – 6.300 kr.
  • Háskólapeysa – 5.500 kr.
  • Litir: bleik, blá og grá
  • Stærðir: XS–3XL (bleik/blá), XS–5XL (grá)

Nemendafélagið hvetur öll til að tryggja sér peysu sem fyrst og sýna þannig bæði samstöðu og stuðning við góðan málstað.

COMMENTS