MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Kynningar

Síðasta helgi Bændamarkaðsins í Krónunni á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
baendamarkadur2
kaffid.is

Fimmta og síðasta helgi Bændamarkaðar Krónunnar fer fram helgina 25. til 27. september í verslun Krónunnar á Akureyri. Norðlendingar geta þar nálgast fjölbreytt úrval af fersku og ópökkuðu íslensku grænmeti á meðan birgðir endast, en úrval og magn ráðast af uppskeru og afhendingum frá bændum. Markaðurinn hófst í lok ágúst í öllum 26 verslunum Krónunnar.

Bændamarkaðurinn er nú haldinn í tíunda sinn í samstarfi við Sölufélag garðyrkjumanna. Alls taka 20 bændur þátt í ár og hefur verið boðið upp á yfir 30 tegundir af íslensku grænmeti. Á markaðnum árið 2025 seldust rúmlega 145 tonn af fersku og ópökkuðu grænmeti.

Uppskeran kemur frá ræktendum víða um land, meðal annars frá Hveravöllum auk býla á Suður- og Vesturlandi. Úrvalið getur verið breytilegt þar sem það ræðst af því hvað er tilbúið til upptöku hverju sinni.

„Við finnum ár hvert fyrir miklum áhuga á Bændamarkaðnum. Fólk bíður eftir nýju uppskerunni og kann að meta að geta valið úr fjölbreyttu íslensku grænmeti. Við vonum að Akureyringar og aðrir Norðlendingar nýti síðustu helgina og taki vel á móti því sem bændurnir hafa að bjóða,“ segir Jón Hannes Stefánsson, vöruflokkastjóri ávaxta og grænmetis hjá Krónunni.

Tengdar greinar

Uppfært: 23. september 2026