Það stefnir í frábæra Vetrarhátíð við Mývatn, en hún verður haldin dagana 27. febrúar – 8.mars. Dagskráin er fjölbreytt, en fastir liðir eins og hestamótið Mývatn open og íslandsmeistaramót hundasleða verða á sínum stað.
„Það má búast við fjölbreyttum viðburðum um alla Þingeyjarsveit, en hátíðin er ekki bara við Mývatn,“ segir Hulda María Þorláksdóttir, verkefnastjóri hátíðarinnar. „Til dæmis verður fjölskyldudagskrá í Vaglaskógi sunnudaginn 1. mars, bíósýning og leiksýningar á Laugum og spilakvöld í Kiðagili í Bárðardal, svo eitthvað sé nefnt.“
Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár, en hún teygir sig yfir tvær helgar og dagana þar á milli. „Margir viðburðir eru mjög fjölskylduvænir, en það verður pop-up af sýndarveruleika um Sturlungaöld á Gíg, buggybílar og Go-Kart á ís, skíðasvæðið í Kröflu verður opið og svo verður hægt að hlýja sér á strangheiðarlegu kaffihlaðborði.“
„Áherslan er vissulega á útiveru og að njóta vetrardýrðarinnar saman, en einnig eru margir viðburðir innandyra og ég held að það hljóti bara að vera eitthvað fyrir alla! Kvöldin verða skemmtileg líka, en til dæmis eru barsvar, karaoke og tónleikar á dagskránni.“
Fyrirtæki í heimabyggð leggja sitt að mörkum til þess að bjóða gesti velkomna, og bjóða tilboð á gistingu, veitingum og afþreyingu. Á heimasíðu Vetrarhátíðar eru allar upplýsingar um dagskrána og tilboðin.
Vetrarhátíð við Mývatn er í boði Þingeyjarsveitar og skipulögð af Mývatnsstofu.


COMMENTS