Söfnun hrundið af stað til stuðnings Heiðdísi og Bergi

Vinir og aðstandendur mæðginanna Heiðdísar Rósu Sigurjónsdóttur og Bergs Loga Óðinssonar hafa hrundið af stað söfnun til að létta undir með fjölskyldunni eftir erfitt rúmt ár þar sem þau hafa bæði gengið í gegnum alvarleg veikindi og umfangsmiklar læknismeðferðir.
Heiðdís Rósa greindist með heilaæxli og hefur á síðasta ári gengist undir stóra skurðaðgerð á heila, farið í 28 geislameðferðir og glímt við erfiða lyfjameðferð. Krabbameinið er því miður enn til staðar og þarf hún að búa áfram við veikindin og þær afleiðingar sem meðferðin hefur haft í för með sér.
Bergur Logi hefur jafnframt gengið í gegnum erfitt ár. Hann hefur farið í tvær stórar aðgerðir á hrygg þar sem settar voru 34 skrúfur í hrygginn til að rétta hann við. Eftir að sýking kom upp í kjölfar aðgerðarinnar þurfti að framkvæma aðra aðgerð. Fram undan er svo þriðja aðgerðin þar sem laga þarf skrúfur.
„Okkur langar til að gera eitthvað fyrir Heiðdísi Rósu og Berg Loga en það er hálf takmarkað hvað hægt er að gera til að hjálpa í þessari erfiðu stöðu. Því langar okkur að setja af stað smá söfnun til að létta undir með þeim,“ segir Guðrún Hanna Sigurjónsdóttir, systir Heiðdísar, í Facebook-færslu.
Auk þess álags sem veikindin hafa haft í för með sér fyrir fjölskylduna fylgir þeim töluverður kostnaður, meðal annars vegna ferða til Reykjavíkur vegna læknisheimsókna, aðgerða og meðferða.
Aðstandendur hvetja alla sem hafa tök á til að leggja söfnuninni lið og styðja þannig við fjölskylduna á þessum erfiðu tímum.
Þeim sem vilja leggja söfnuninni lið er bent á eftirfarandi bankareikning:
Reikningsnúmer: 2200-26-241013
Kennitala: 130790-2169
Reikningurinn er í nafni Heiðdísar Rósu.
Tengdar greinar
Uppfært: 15. nóvember 2026










