Hljómsveitin Sólför frá Akureyri gaf í dag út lagið Resurrection. Þetta er annað lag sveitarinnar og von er á þremur nýjum lögum á næstu vikum ásamt plötu síðar á árinu.
Ivan Mendez, söngvari sveitarinnar lýsir laginu sem þriggja mínútna orkusprengju sem á að hlusta á með allt í botni og ætti að gleðja alla rokkunnendur. Hann segir skilaboðin vera skýr: Rokkið er risið á ný.
„Rokkið er búið að vera í svolitlum dvala síðastliðin ár hérna heima á Íslandi. Það eru auðvitað rosalega flott bönd að gera góða hluti, eins og Vintage Caravan, Kaleo og fleiri. Áherslan hefur þó mikið verið á hip-hoppi á autotune rappi, en nú eru lítil bönd að poppa upp allstaðar í bænum, rokk, pönk, alternative og allskonar snilld. Ég tek þessu fagnandi, sérstaklega því að sjá alvöru hljóðfæri á sviði aftur. Við erum bara að reyna að kynda undir eldinum og svæla burt gamla og þreytta anda. Ég held að fólk sé farið að þrá eitthvað hrátt og óheflað,“ segir Ivan.
Sveitin stefnir á plötuútgáfu í haust, og hyggjast meðlimir sveitarinnar gera það á gamla mátann, á alvöru vínylplötu.
„Þessi tónlist er bara gerð fyrir vínyl. Þaðan kemur innblásturinn af sándinu. Svo er líka miklu skemmtilegra að halda á verkinu í höndunum, það gefur því meira gildi,“ segir Sigfús Jónsson, bassaleikari og upptökustjóri.
Lagið er að mestu hljóðritað og unnið í Stúdíói Hljómbræðra, en trommur eru teknar upp í Hljóðveri Tónlistarskólans í Hofi. Sveitin stefnir á sína fyrstu tónleika, ásamt hljómsveitunum Show Guilt og LEÐUR á Leyni barnum í Göngugötunni á Akureyri þann 11.Apríl næstkomandi.
Lagið er komið á allar helstu veitur og hægt að hlusta meðal annars hér að neðan


COMMENTS