Sorgarmiðstöðin hefur störf á Akureyri

Sorgarmiðstöðin hefur störf á Akureyri

Sorgarmiðstöðin hefur hafið störf á Akureyri með verkefnið Hjálp48. Markmið verkefnisins er að grípa aðstandendur eftir skyndilegan ástvinamissi utan sjúkrahússtofnana og veita þeim viðeigandi stuðning og eftirfylgni. Til að byrja með er þjónustan einskorðuð við sjálfsvíg en markmiðið er að útvíkka síðar.

Þjálfun fyrir Hjálp48 teymi Sorgarmiðstöðvar á Akureyri  fór fram dagana 3. og 4. september  í Glerárkirkju. Þau sem að stóðu að baki þjálfuninni voru Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri Lífsbrúar – miðstöð sjálfsvígsforvarna, Álfheiður Svana Kristjánsdóttir, Neyðarvarnarfulltrúi Rauða Krossinum, Anna Guðný Hermannsdóttir verkefnastjóri Hjálp48 og  Andrea Walraven-Thissen sérfræðingur í stuðningi í kjölfar sjálfsvígs.  Hjálp48 teymið er skipað sex manns auk þriggja varamanna, sem öll hafa víðtæka reynslu, bakgrunn og þekkingu  til þess að veita þjónustuna og styðja við syrgjendur.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sorgarmiðstöðvarinnar.

„Það var mikill fengur að fá Andreu Walraven-Thissen inn sem kennara.  Hún hefur bakgrunn í geðhjúkrun og hefur starfað sem viðbragðsaðili í yfir 25 ár. Hún er sérfræðingur í  stuðningi í kjölfar sjálfsvíga (postvention) og í sálfélagslegu mati/forgangsröðun (triage). Hún sérhæfir sig í gagnreyndum rannsóknum á fyrstu viðbrögðum og sálrænum áhrifum þeirra. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu og leiðbeinir stjórnvöldum, alþjóðasamtökum og viðbragðsteymum um allan heim. Hún er höfundur bókarinnar Responding After Suicide: A Practical Guide to Immediate Postvention,“ segir í tilkynningu Sorgarmiðstöðvarinnar.

Þjónustusvæði í fyrsta fasa er Akureyri og nágrenni og er þjónustan nú þegar í boði fyrir íbúa á þessu svæði. Nánar er hægt að lesa um verkefnið með því að smella á hlekkinn hér.

Mynd með frétt: Teymi Hjálp48 ásamt leiðbeinendum námskeiðsins. Myndin er í eigu Sorgarmiðstöðvarinnar.

COMMENTS