Stefnt er að því að leggja nýtt gervigras á Þórssvæðinu á Akureyri í næstu viku á mánudaginn 29. september. Undanfarnar vikur hefur öflugur hópur starfsmanna lagt lokahönd á upphitaðan gervigrasvöll á Þórssvæðinu. Greint er frá á vef Þórs í dag.
Gervigrasvöllurinn verður austan við aðalvöll Þórsara, á svæði sem kallast Ásinn. Þar er verið að byggja knattspyrnuvöll í fullri stærð með flóðlýsingu auk æfingasvæðis. Samhliða mun rísa 500 manna áhorfendastúka austan við völlinn.
Stúkan er þegar komin til landsins og verður sett upp á skömmum tíma eftir að völlurinn er tilbúinn.
Reimar Helgason framkvæmdastjóri segir á vef Þórsað framkvæmdum miði vel.
„Veðurguðinn er loksins okkur hliðhollur. Við klárum að leggja púðann um næstu helgi og stefnum á að byrja að leggja grasið mánudaginn 29. september. Eftir þessa viku þurfum við um tveggja vikna glugga til að ljúka bæði púða og graslagningu.“
Reimar tók sjálfur myndina af svæðinu sem fylgir fréttinni í gær. Þórsarinn Kiddi Lór leit við til að ganga úr skugga um að allt væri á réttri leið.


COMMENTS