Steps Dancecenter kynnir nýtt dansmyndband – Ready For Take Off eftir Birtu Ósk Þórólfsdóttur

Steps Dancecenter kynnir nýtt dansmyndband – Ready For Take Off eftir Birtu Ósk Þórólfsdóttur

Steps Dancecenter hefur gefið út glæsilegt dansmyndband við atriðið Ready For Take Off, sem samið er af Birtu Ósk Þórólfsdóttur. Atriðið keppti fyrr í vetur í undankeppnum bæði Dance World Cup og Global Dance Open með frábærum árangri, og þótti því kjörið að fanga það á filmu.

Tökur fóru fram í einstöku umhverfi Flugfélags Íslands, þar sem dansararnir komu fram innan um flugvélar og flugfreyjubúninga – sem bættu við myndbandinu kraft og sviðsmynd sem erfitt er að toppa.

Dansmyndbandið er sett við lagið „TF stuð“ eftir Pál Óskar og fangar kraft, orku og sviðsnærveru sem einkenna bæði listamennina og flugumhverfið sjálft.

Hér má sjá videóið: Ready for take off

COMMENTS